HjartahnođPrimadonnur

Bara að blása lífi í síðuna okkar...
Hún var aaaalveg að deyjaSurprised

Útskriftarveisla ţann 31.janúarPrimadonnur

Jæja þá er þetta komið á hreint og klárt:)

ég ætla að bjóða ykkur skvísum heim til mín í Arnarás 13 í tilefni af því að vera orðin löglegur viðskiptafræðingur hehe
Veislan...afsakið pjöllupartí dauðans, verður haldið 31.janúar og byrjar kl 20.00

Hlakka til að sjá ykkur allar sem komast og tökum ærlega á því saman hehe:)

megið endilega láta vita sem komast - komast ekki - svo ég geti planað matarkörfuna hjá mér hehe

kv. Yfirpjallan

Jćja skvísur - nćsta partý:)Primadonnur

ég er sem sagt (loksins!) að fara að útskrifast núna á laugardaginn og þá verður haldin fjölskylduveislan:)
síðan ætla ég að sjálfsögðu að halda aðskilda alvöru partý veislu fyrir vinkonurnar!

þannig að mig langaði til að fá að heyra hvernig ástandið er á ykkur, annað hvort laugardaginn 31.janúar eða laugardaginn 14.febrúar. endilega segið hvorn daginn ykkur líst betur á - en það verður ekkert rokk og ról með dagana eins og seinast hehe bara þessir tveir dagar í boði hehehe
ég ætla að hafa veislu þar sem ég býð ykkur prímóunum mínum og svo skólastelpunum mínum og kristbjörgu vinkonu:) þannig að þetta verður góður hópur í góðu glensi Cool

hlakka til að heyra frá ykkur -

knús og koss frá Villu pillu

Annáll 2008Primadonnur

Gleðilegt ár kæru PRÍMADONNUR og aðrir

aðdáendur Kiss

Takk fyrir allar samverustundirnar á árinu sem er að
líða og munið að ganga HÆGT um gleðinnar dyr!! Wink

Smá brot af því besta....

Janúar - krílahittingur
 











Maí - útskrift og Eurovision hjá Hrund


Maí - Esjuganga



Júlí - Hrund afmæli



Ágúst - Blómstrandi dagar í Hveragerði



September - Afmæli Thelmu og Dóru



September - Afmæli Kötu



September - afmæli Helgu Völu



Desember - jólahittingur @ Hrund



Frábćrt kvöld:)Primadonnur

Jæja skvísur, takk fyrir æðisgengið kvöld, þetta var algjör snilld:) Og ekki skemmir helgina að Hrund hafi gengið svona rosalega vel í keppninni, bara enn og aftur til lukku með þettaTongue out

ég fæ mig ekki til þess að setja inná síðuna myndina sem ég tók af dóru og klobbanum á henni, ef ske kynni að einhverjir aðrir aðilar en við dyttu inn á þessa síðu, en myndin er alveg brútal skal ég segja ykkur og BARA fyndin hehehehe

en já ég bara verð að segja að þetta tókst ekkert smá vel og var bara alveg geggjað gaman, en vá hvað ég var orðin þreytt eftir að ég keyrði ykkur í bæinn, fór beint heim í bað og steinsofnaði hehe

gaman að segja frá því að doddi greyið hélt að hann mætti alls ekki koma heim fyrr en við værum farnar út og þegar ég sagði honum í kringum eitt leytið að við værum á leiðinni út, þá lagði minn af stað heim hehe hann var sem sagt í bíltúr síðan bara í þennan klukkutíma sem það tók okkur að fara út - greyið hehe hann hélt að hann væri í banni Cool

en hér kemur síðan uppskriftin sem ingibjörg bað um hehe þetta eru súkkulaði kökurnar, ekki örvænta, það er ótrúlega einfalt að búa þetta til!!

250 gr döðlur
3 dl vatn
1 tsk matarsódi
100 gr smjör, mjúkt
130 gr púðursykur
2 egg
150 gr hveiti
120 gr súkkulaði, saxað

Hita ofn í 180 gráður. Setja döðlur í pott ásamt vatninu og láta suðuna koma upp og sjóða í kringum 5 mín. Strá matarsóda yfir og sjóða aðeins lengur (verður að svona mauki). Setjið svo döðlurnar í matvinnsluvél eða hrærið bara vel saman.
Hrærið svo smjör og sykur, bætið eggjum útí. bætið döðlumaukinu út í og svo súkkulaði og hveitinu. Hrærið þessu öllu saman og setjið í form og bakið í 25-30 mín.

Sósan:
120 gr smjör
100 gr púðursykur
1/2 tsk vanilludropar
3/4 dl rjómi

Allt sett saman í pott og látið sjóða í 5 mín.

Best að bera þetta fram volgt, ef kökurnar eru gerðar fyrirfram er gott að skella þeim í örbylgjuna áður en þær eru bornar framKiss

takk aftur fyrir frábært kvöld, svo er bara að endurtaka leikinn fyrir jólin!

kv. Villa

4. sćtiđ :)Primadonnur

Hæ dúllurnar mínar,

þá er ballið búið í biliSmile Öll þessi vinna og undirbúningur skilaði mér 4. sætinu og ég get ekki annað en verið MJÖG sátt með þaðLaughing Þetta var æðislegur dagur í gær og pizzan var GÓР get ég sagt ykkur hahaha.... Bara tilfinningin að standa þarna uppi á sviði fyrir framan fullt af fólki var alveg mögnuð. Stressið var líka talsvert fyrst en eftir því sem leið á keppnina fann maður meira öryggi. Hárgreiðslan hennar Dóru var mega flott og ég fékk mikið af hrósum fyrir hana... takk elskan mín:* Laufey vinkona var með mér fyrir aftan og ég hefði ekki getað þetta án hennar... algjör gullmoli þar á ferð og reddaði manni alveg! Og það að hitta ykkur allar kvöldið áður var alveg mega!! Það er ekki hægt að hugsa sér betra pepp en frá ykkur, takk fyrir að vera til stelpur mínar, þið eruð æðislegarKiss

Þá er bara að fara að huga að jólum og sinna barni og fjölskyldu sem óneitanlega hafa verið dáldið útundan síðustu vikurnar. Svo er næsta keppni um páskana og þá er það pallurinn!!Wink

Sí jú gæs..

Hrund



Allir ađ kaupa miđa á midi.is !!!Primadonnur

Well Girls:)Primadonnur

Þá er það klúbburinn góði næsta föstudag:) Hann verður 21.nóvember kl 20.00 í Arnarási 13 í Garðabæ:)

Það verða kræsingar á boðstólnum í föstu formi og svo komið þið bara með áfengar veigar þeir sem vilja svoleiðis - en ég býð uppá gosið audda maður:)

Svo ætla ég að bjóða Loga Bergmanni til okkar og hann mun sjá um spurningakeppni kvöldsins hehehehe

Hlakka ógó til að sjá ykkur - allar að koma svangar :)

p.s. er einhver með ofnæmi fyrir hundum???? doddi verður náttla fjarri góðu gamni en ég ætlaði bara að hafa hundana mína heima samt ef enginn er með ofnæmi..Tongue out

Um að gera að byggja upp stemmarann og hafa þetta kvöld alveg æðisgengiðCool

Eitt enn, ég þyrfti helst að vita fyrir miðvikudaginn ef einhver sér fram á að komast ekki - uppá matarinnkaup og slíkt Kiss

kv. Villa pilla





Ég er ótrúleg :)Primadonnur

Á föstudaginn fór Auður að sjálfsögðu niður í bæ að fá sér jólabjór, og var að sjálfsögðu allveg eitur hress :)

En það var í eitt skipti sem hún fór inn á klósettið með henni Betu og þá gerðist þetta:

Við löbbum inn rosa sprækar og þá sé ég að það er karlmaður að fara inn á eitt klósettið og ég ýti á hurðina og segi: "Fyrirgefðu en þetta er kvennaklósettið, villt þú ekki fara yfir á klósettið þar sem karlar fara á?" (var frekar pirruð yfir að þurfa að bíða á meðan einhver strákur myndi pissa á setuna), En þá segir hann við mig: "Já og ég ætla nú að pissa hérna", þá verður Auður nú ennþá meira pirruð og ýtir á hurðina þannig að það er enginn möguleiki fyrir hann að loka. Þá segir hann við mig "heyrðu fyrirgefðu en ég má allveg pissa hérna" og allveg þvílíkt hissa, þá segi ég: "já eigilega ekki, þetta er fyrir konur ekki karla". Þá kemur strákurinn út af klósettinu og ætlar að fara að ræða við mig, mér til mikilla undrunar er hann með STÆRSTU brjóst í heimi. Ég fölna öll og skammast mín þvílíkt og segi: "Fyrirgefðu ég hélt að þú værir strákur" Embarassed

Síðan labba ég hjá klósettinu við hliðina og heyri í Betu þar inni hí hí hí þá er hún skelli hlæjandi. Ég bið hana vinsamlegast að opna fyrir mér og ég stekk inn til hennar. Við vorum þar í smá tíma, ég var ekki allveg að þora að sjá hann/hana aftur ég skammaðist mín svo mikið, þannig að ég beið í smá stund og ætlaði svo að kíkja og gá hvort hún væri farin, geri smá rifu á hurðina og viti menn það fyrsta sem ég sé er hann/hún og hún sér mig, þannig að þarna gerði ég mig að en meria fífli.

Síðan þurfti ég nú að fara út ekki ætlaði ég að vera inn á klósetti og missa af öllum fría bjórnum. Þannig að ég fór bara út spjallaði aðeins við hann/hana. Og hún var svona eitur hress ekkert móðguð eða neitt, sem var mjög gott. Hún hefur ábyggilega bara verið stolt að lýta út eins og karlmaður Undecided Enda var hún fyrir konur og það veit ég vegna þess að ég losnaði ekki við hana allt kvöldið, vildi náttúrulega ekki vera dónaleg við hana aftur, fannst ég vera búin að gera nóg af því þetta kvöld Smile

Skömmustu kveðjur
Auður Kiss

Látum gott af okkur leiđa....Primadonnur

http://www.skokassar.net/

Ađalvalmynd

Auglýsing

Myndir

Leit

Hér er hćgt ađ senda Auđi sms á netinu:)

Könnun

Ég ćtla ađ mćta á haustfagnađ Prímadonnuklúbbsins

Innskráningar kubbur

Spjallkubbur

..Augnablik

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Atburđarteljari

Nýustu fréttir

* Dóra, Kata og Villa fara til Danmerkur ađ heimsćkja Auđi 21. feb.
* Hrund verđur á námskeiđi í London 21-25. feb.
* Ţrekmeistarinn 19. apríl !!!